Var að koma af POWER-sýningu í Laugarásbíói og verð að segja, það á bara að sjá þessa mynd þannig.
Held að besta leiðin til að lýsa þessari mynd að það eru 3.47 (minnir mig) dráp á mínútu skv. grein í Fréttablaðinu en hér er e-ð sem ég googlaði.
En að öðru. Handritið fannst mér frekar mikið crap en sprengingaranar, flottu drápin og bara hljóðið bætti það algerlega. Sum atriðin er þó virkilega of gróf og of raunveruleg, sbr. árásirnar á Karen ættbálkinn, það var bara allt choppið sýnt.
Eitt böggaði mig reyndar, þegar ráðist er á þorpið sem Sarah, Michael og fleiri frá kristna söfnuðinum þá kom e-ð hár eða einhver djöfullinn inn á myndina allt atriðið, fór mjög svo í taugarnar á mér :/. Svo eftir hlé þá held ég að það sé Laugarásbíói að kenna en er ekki viss, lækkaði tónlistin um smá kafla án sýnilegrar ástæðu.
Á heildina litið er þetta góð mynd af maður mikið fyrir sprengingar og bara svona sjúkt mikið af drápum.
P.s.
Langar til að sjá Norris VS Rambo (svipað til Freddy vs Jason) þótt það yrði bara kjánalegt.
P.p.s?
Farið á myndina með POWER hljóði.